Þessi vefsíða notar vafrakökur (cookies) til að bæta þjónustuna. Með því að heimsækja samskipti.is samþykkir þú skilmála um vafrakökur. Lesa skilmála
Plasthúðum og límum upp allar gerðir veggspjalda, barmmerkja, upplýsingaspjalda, landakorta o.fl. Val á ýmsum þykktum og áferðum plasthúðarinnar eru í boði og hentar hver sínum tegundum prentefnis. Plöstun er sérstaklega þægilegt þegar þarf að verja myndir sérstaklega fyrir raka og hnjaski. Auglýsingaspjöld, landakort, teikningar, sýningabásar og skýringamyndir ýmiskonar eru tilvaldar í plöstun, þar sem umgangur og handfjötlun á efninu er mikil og ekki síður á matseðlum þar sem hreinlæti er mikilvægt og þeir fara um margar hendur yfir daginn. Þar er plöstun svo sjálfsögð að ekki ætti að segja neinum til um það. Til dæmis: Myndin á að vera slétt og flöt. Þá setjum við hana á plötu og plöstum yfir með möttu eða glansandi plasti. Matt plast dregur úr glampa frá ljósgjöfum á meðan glansandi plasthúðun getur gefið myndinni dýpt og skerpu í litum og víddum. Leitið frekar upplýsinga hjá sölufulltrúum okkar í síma 580 7820 eða sendið okkur tölvupóst á sala@samskipti.is.